Hér eru allir komnir í sumarfrí og í góðum gír. Maggi byrjaði á að fara í Skálholt í eina viku en við vorum bara heima á meðan. Við fórum reyndar og heimsóttum hann sl. föstudag og Ísak fékk að vera eftir og gista. Hann var ekkert smá montinn. Svo sótti ég hann á laugardaginn og við hlustuðum á tónleika Hljómeykis í Skálholtskirkju. Hann var alveg að drepast greyið úr leiðindum en var ekki með nein læti, bara allur á iði og stundi og stundi. Jakob fékk að vera hjá ömmu og afa í Fiskó á meðan og skemmti sér þvílíkt vel. Fór að skoða blómin í Grasagarðinum og datt í vatnið sem var voða skemmtilegt. Hann steig reyndar bara með annan fótinn en engu að síður hægt að ræða það fram og til baka. Svo erum við búin að fara og grilla í Heiðmörk sem var dásamlegt og eyddum hálfum sunnudeginum á Árbæjarsafni sem strákarnir elska. Þeim finnst svo gaman í "leikhúsinu" þar sem allt dótið er og búningarnir og brúðuleikhúsið.
Það er lítið á stefnuskránni hjá okkur næstu daga. Förum svo á ættarmót á Bíldudal og þaðan norður í Mývatnssveit seinna í mánuðinum. Ísak ætlar að vera í 2 vikur-tilkynnti það. Hann hlakkar svo til að fara í sveitina og fara í í búið. Ég óska þess svo bara að fá fleiri sólardaga á pallinum :-D
3 ummæli:
Mikið hlakka ég til að sjá ykkur í sveitinni:o)
Kv. Jóna Björk
Skemmtilegt að lesa þessar færslur hjá þér Hrafnhildur mín. Vona að þið hafið það gott í fríinu ykkar.
Ji, maður bara kíkir fyrir rælni og bara fullt af færslum!
Hér er alltaf reglulega talað um Jakob og Ísak. Söknum ykkar!
Knús
Bryndís
Skrifa ummæli