13. janúar 2011

Og þá var komið nýtt ár!

Gleðilegt ár! Alveg hreint ótrúlegt hvað tíminn líður hratt og ég veit að maður er alltaf að hugsa þetta og segja þetta en það verður bara aldrei of oft sagt! Við eru nýbúin að ganga frá jólaskrautinu síðan í fyrra þegar við tókum það upp aftur og nú erum við strax búin að ganga frá því! Jólin í ár voru náttúrulega einstaklega snubbótt upp á frí og fannst mér ansi undarlegt að þurfa að vinna á milli jóla og nýárs. Maður er orðinn mjög góðu vanur að vinna í skóla verður að segjast. Mikil fríðindi sem fylgja því.

Lífið gengur sinn vanagang hér í Mosarimanum. Haustið leið hratt. Ísak var á sundnámskeiði frá því í september að mig minnir, hjá sunddeild Fjölnis. Fyrst 2 í viku og svo 3 í viku þegar hann færði sig upp um hóp. Hann tók þvílíkum framförum og er efnilegur sundkappi. Seinna námskeiðið var hann einn í lauginni því þetta var fyrir "stóra krakka":-) Hann vildi hins vegar alls ekki halda áfram og er það líka allt í lagi þar sem þetta var ansi stressandi oft að ná þessu inn í dagskránna. Hann hefur verið að æfa sig á sellóið líka og byrjaði hjá Örnólfi í haust. Það hefur gengið ágætlega, hann er ekkert æstur í að æfa sig en hefur farið mikið fram undanfarið og er þessa dagana að æfa "Góða mamma" og "Parísarhjólið". Hann er voða ánægður með leikskólann sinn eins og alltaf. Elstu börnin voru sameinuð í eina deild í nýju húsnæði í haust sem heitir Uglugarður. Þau fengu stílabækur og komu með pennaveski og hann hefur voðalega gaman af þessu blessaða veski! En að fá hann til að krota í bók eða blað hefur verið eins og að biðja hann að éta sand! Hefur bara ekki áhuga! Það hefur reyndar breyst síðustu 3-4 vikurnar. Allt í einu er hann aðeins farinn að lita í bók og gengur betur að halda á skriffæri. Það er samt enn langt í land í þeim þroska hjá honum. Við verðum kannski dugleg að æfa okkur nú þegar áhuginn er aðeins að vakna. Hann er tvisvar búinn að biðja um að skrifa á litla minnismiða og tókst þá að skrifa marga stafi ef ég bara sagði honum hvaða stafur kæmi næst. Um daginn skrifaði hann umsögn um daginn: "allir voru fyrir. Ég borðaði bjúgu". Góð súmmering á þeim degi! Hann er líka með mjög góða hljóðkerfisvitund og farinn að geta sagt til um á hvaða staf orð byrja og enda og hefur mikinn áhuga á orðum og rími. Enda orðinn FIMM! Vá, hvað hann var spenntur fyrir 5 ára afmælið, hann varð m.a.s. svo spenntur fyrir strákaafmælið að hann hreinlega lagðist í rúmið í miðri veislu og var orðinn lasinn! Skreið bara undir sæng meðan strákarnir voru hérna. Litla skinnið en það rjátlaði af honum eftir smá meðal frá henni Ameríku.

Þá er að koma að fréttum að skæruliðanum!!! Jakob er ofsalega kröftugur og hress og yfirleitt alltaf glaður. Hann byrjaði í leikskólanum Laufskálum í ágúst og fór í gegnum þátttökuaðlögun með okkur foreldrunum. Það gekk rosalega vel og hann var ekkert smá glaður að leika við alla krakkana og vera úti. Hann lærði nöfn hinna mjög fljótt og þroskaðist mikið á stuttum tíma. Svo komst hann inn á Vinagarð okkur algjörlega að óvörum og byrjaði þar 1.desember. Aðlögunin þar gekk líka vel, þó hann hefði grátið aðeins fyrst en nú er hann voða glaður þar líka. Málþroskinn er mjög góður, samkvæmt ákv málþroskaprófi sem ég hef verið að nota er hann eins og 23-24 mánaða í orðaforða en er 21 mánaða :-). Enda blaðrar hann og blaðrar allan daginn. Hann er farinn að tala í 3 orða setningum og ELSKAR að syngja! Hann var svo fyndinn þegar hann byrjaði í leikskóla, um leið og þær sögðu orðið "syngja" hljóp hann inn í litla samveruherbergið og settist upp við vegg, tilbúinn að syngja! Hann lærði fljótt fullt af lögum og nú kann hann svo mörg að maður hefur ekki tölu á því. Uppáhaldið var lengi vel "liggaliggalá" en nú tröllríður Latibær öllu svo það er komið langt fram úr því að vera einu sinni fyndið! Hann er gjörsamlega með Latabæ á heilanum og talar varla um annað. Gerir svo íþróttaæfingar á gólfinu eins og íþróttaálfurinn og segir "sjáðu mamma!" "sjáðu pabbi"! Hann er mikil kelirófa og biður oft um að kúra en getur svo verið algjört skass og hikar ekki við að lemja stóra bróður sinn ef Ísak er eitthvað fyrir honum! Það hefur nefninlega verið meira á þann veginn að Jakob er að slá og pirra Ísak af ásettu ráði en að Ísak geri svoleiðis við Jakob. Að lokum verð ég að skrifa að hann er ótrúlega fyndinn oft þegar hann er að reyna að sofna inni í rúmi. Þá galar hann og syngur hástöfum og talar við sjálfan sig lon og don. Ef þeir eru að fara að sofa á sama tíma þá er það hann sem stendur fyrir skemmtiatriðunum og Ísak liggur og hlær þar til hann sofnar löngu á undan bróður sínum.

Ætli ég fari ekki að segja þetta gott. Þurfti eiginlega bara að skrifa þetta til að geta lesið seinna :-) Ef einhver rekst á þetta má sá hinn sami gjarnan kvitta.

5 ummæli:

Tinna sagði...

AhA! Borgar sig að vera með þessa síðu í RSS-straumi.
Gamanaðessu, þeir bræður greinilega miklir snillingar.

Nafnlaus sagði...

Loksins....Frábært framtak hjá þér elsku Hrafnhildur mín að skrifa hérna inn um þá bræður. Langaðar til að óska ykkur öllum gleðilegs árs og kærar þakkir fyrir yndislegt jólakort.
Verðum svo að fara að hittast á nýju ári. Kveðjur og knús á ykkur öll. Hugborg og Sóldís Lilja

Nafnlaus sagði...

Vei:o)

Kv. Jóna Björk

Lilja Árnadóttir sagði...

Takk fyrir skrifin Hrafnhildur. Gaman að fylgjast með litlu (stóru strákunum) sem á einhvern hátt maður tengist ósjálfrátt án þess að þekkja þá. Sakna þín í hópnum en auðvitað er ekki allt hægt. Skil það vel og þú verður að hlusta á okkur í þetta skiptið.
Bestu kveðjur
Lilja

Hrafnhildur sagði...

Takk fyrir innlitið :-)