Jakob hefur ekki viljað snuð hingað til. Eða jú, tók það glaður ca 5 daga gamall og notaði eitthvað í ca 2 vikur svo ekki söguna meir. Hefur bara verið að tyggja þetta og kúgast. En í fyrradag festist ein tegundin í hálfa mínútu með því að setja smá bonjela-gel á það, svo ekki söguna meir og vildi það ekki í dag. En ALLT Í EINU áðan, með smá bonjela þá bara byrjaði hann að totta og sjúga eins og lífið lægi við og nú sofnaði bara lítill duddukarl í vöggunni sinni. Ekki með neitt suð í eyrum, bara spiladósina sína! Jeiiiiiiiiii! Mér finnst hann samt eitthvað furðulegur með þetta upp í sér, eins og þetta fari honum ekki!
Í Ísaks herbergi liggja svo frændur tveir í alveg eins náttfötum og reyna að sofna við undirleik Skilaboðaskjóðunnar (annar heldur fyrir eyrun af hræðslu við Nátttröllið og það er ekki frændinn)
Af mér er svo allt gott að frétta. Er aðeins að byrja að hreyfa mig aftur eftir árs hlé! Hreyfði mig nánast ekkert á meðgöngunni nema e-a 4 sundtíma sem ég svo hætti sökum sársauka...En nú er grindin nánast alveg hætt að kvarta svo ég prófaði að synda smá um daginn og gekk vel og gekk svo alveg í klukkutíma í dag og ekkert mál:-)
Verð samt að segja að ég var ekki að fíla sundbolinn sem ég keypti mér. Þegar ég spyrnti frá bakkanum fór bara hellings vatn inn á bringuna og alveg niður á maga fannst mér, þannig að ég var með sundlaugina ofaní sundbolnum og fannst auðvitað að allir sem ég mætti gætu séð á mér brjóstin! Held ég verði að finna nýjan, ég get ekki synt með aðra höndina fasta við bringuna til að halda við!
Helgin er lítið plönuð hjá mér. Maggi verður fyrir austan fjall að stjórnast í Kammerkór Suðurlands á morgun svo ætli ég taki því ekki bara rólega og vonast eftir góðu veðri á pallinum. Spurning hvort maður hitti svo á Guðrúnu og grísina hennar á sunnudaginn... GÓÐA HELGI OG GJÖRA SVO VEL AÐ KVITTA;-)
2 ummæli:
Kvitt!
Sjáumst á morgun, þó ekki fyrr en eftir sjúkraþjálfun! Auðvitað gleymdi ég að ég væri að fara í hana...
Kv. Bryndís
Maður les allt í gegn og sleppir auðvitað síðustu línunni. Hér kvitta ég auðvitað fyrir mig þó það sé ekki í fyrsta sinn sem ég les þessa færslu.
Skrifa ummæli