16. júní 2009

Komin aftur

eftir 2ja vikna tölvufrí! Frekar ljúft að vera tengd við netheima aftur en maður er búinn að vera ansi sambandslaus! Svo sem fínt að fá frí líka og gera annað. Náði t.d. loksins að klára "Menn sem hata konur" sem ég byrjaði á þegar ég var ólétt!

Hið sorglega er að tölvan varð svo lasin að það tókst ekki að bjarga NEINU af harða disknum! Öll mín gögn úr vinnunni t.d. og allar myndir síðan e-n tíman síðasta haust eru horfnar. Sem betur fer hef ég margar á myndasíðunni og facebook en öll vídeó eru horfin og manni finnst e-n vegin svo mikilvægar þessar fyrstu myndir af Jakob... sniff sniff. En þetta kennir manni bara lexíu og nú ætla ég að reyna að flytja allt jafnóðum yfir á auka-diskinn.

Helstu fréttir eru að við skírðum 2.júní á afmælisdegi tengdó. Það var yndislegur dagur. Við þökkum öllum kærlega sem deildu honum með okkur og fyrir allar fallegu skírnargjafirnar! Jakob lét auðvitað í sér heyra eins og honum einum er lagið svo mikið að presturinn missti röddina og ég heyrði því miður lítið í pabba þegar hann söng Unu! En svo skemmti hann sér bara vel það sem eftir var. Fílaði kannski ekki að vera í kjól með nælu sem stakk?

Svo brunuðum við norður daginn eftir en meira um það síðar, nú er kominn háttatími fyrir mig.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ..Leiðinlegt að heyra með tölvuna, það er að segja myndirnar..Kíkji alltaf reglulega hingað inn en er léleg við að skrifa í komment..Við ætlum að skíra á sunnudaginn þá verður prinsessan 2 mánaða..Bestu kveðjur, Hugborg

Nafnlaus sagði...

æi en leiðinlegt að heyra með tölvuna. Skil þig svo vel!

Tölvan okkar dó líka einu sinni og við töpuðum einmitt öllum myndum frá því að Freyja fæddist og alveg bara þangað til hún var rúmlega 2ja ára. Sem betur fer var ég búin að setja eitthvað inn á barnaland og eitthvað af videoum... en við töpuðum allskonar krúttlegum myndaseríum, afmælum auðvitað og bara allskonar! og það var svo leiðinlegt... ég fer alltaf næstum því að grenja þegar ég tala um þetta. En það eru alveg einhverjar myndir til - ekki eins og ekkert sé til... en já, kennir manni aldeilis og nú tökum við alltaf backup...MJÖG reglulega.

Jæja, eigum við að hittast í næstu viku?

Bryndís frænka