6. maí 2009

Nýjar myndir í aprílalbúminu

Já nú er það te sem er drukkið í gríð og erg hér af móðurinni. Fyrst verk-og vindeyðandi og svo við sveppasýkingu! Sem er óþolandi sýking og vona ég að hún hverfi sem fyrst. Er komin í hörku prógramm; bera á mig eftir hverja gjöf og upp í Jakob og þvo sér vel á milli, sjóða öll handklæði og allt sem fer upp í hann eða á brjóstin á mér, þvo hendur og spritta og hætt öllu sykuráti!! Sem sagt; hundfúlt en ég nenni ekki og get ekki verið svona svo það þýðir ekkert annað en að hlíða þessu. Já og svo náttúrulækningarnar; te og smyrsl. Pjúff

(Nei Guðrún auðvitað virkuðu töflurnar ekki þar sem Jakob fékk þær ekki líka. Brjóstaráðgjafinn var bara þvílíkt hneyksluð á þessum læknum...hnuss!)

Annars gengur allt sinn vanagang, maður er bara farinn að hlakka til að sjá sólina og að það verði "pallhæft". Á meðan horfum við á Friends eða Frasier og ekki má gleyma að undirbúa sig fyrir Júróvision!!! Ég hugsa að við komumst ekki upp úr undankeppninni! Höldum bara með Norge í staðin....

Engin ummæli: