
Elsku sætasti Ísakinn varð 3ja ára í dag. Var vakinn með söng og gjöfum og fékk svo kórónu og köku í leikskólanum og pizzuveislu í kvöld með fjölskyldunni. Þeir frændur (Ripp, Rapp og Rupp) léku ýmist Mikka ref, Skilaboðaskjóðuna eða Pétur og úlfinn og átu brunabílsköku þar til þeir stóðu á gati. Elsku Jökull sat alsæll og borðaði afmæliskökuna MEÐ EGGJUM og bara andvarpaði af ánægju yfir að fá að vera með (eggjaofnæmið virðist vera horfið!) í þeim kræsingum. Ótrúlegt að hafa þrjá svona gullmola í kringum sig. Ísak var voða duglegur að lesa á kortin sjálfur "elsku Ísak til hamingju með afmælið, afi og amma í sveitinni"/elsku Hrafnhildur til hamingju með afmælið..."!
Til hamingju með afmælið sæti prinsinn okkar. Duglegastur og flottastur
Til hamingju með afmælið sæti prinsinn okkar. Duglegastur og flottastur
4 ummæli:
ó dúllí dúllí. Móðir Rupps sendir kveðjur.
Jiii, til hamingju með Ísak :) Ekkert smá sætur!
Til hamingju með litla molann, sem er bara alls ekkert lítill lengur. Er tíminn í alvöru svona fljótur að líða?
Kv.
Edda
Bara himneskur og yndislegur. Amman svo yfir sig hrifin af gullmolanum.
Amma Rips og Rupps
Skrifa ummæli