20. nóvember 2008

Hamingjuóskir

Daði og Anna trúlofuðu sig í gær=)
Hann bara skellti sér á skeljarnar í Englandi með hringinn tilbúinn og ekkert smá flottur á því!
Við erum hæstánægð með að fá svona flotta og sæta og skemmtilega mágkonu og bjóðum hana hjartanlega velkomna og óskum þeim innilega til hamingju! (Daði gat varla talað í símann í gær hann brosti svo mikið...)

Svo eignaðist uppáhalds-bestifrændi Torfi litla dóttur fyrir viku og óska ég honum og Júlíu innilega til hamingju. Ég hlakka mikið til að sjá hana í eigin persónu og knúsa dálítið.

Dæs, bara eintóm hamingja þessa dagana:)

Já, og við eignuðumst þurrkara í gær sem kemur í hús í dag=) Hef aldrei átt svoleiðis græju og sé fyrir mér að hel.... þvottagrindin standi ekki eins oft út á gólfi og taki pláss! Veiiiiiii

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með litla bróður - og þurrkarann! Fékk sjálf einn slíkan í fyrsta skipti fyrir nokkrum vikum og hann er næstum búinn að vera í gangi síðan! Vonandi gengur allt vel hjá þér og bumbubúanum og styttist í þriggja ára afmæli - til hamingju með það!
Góðar kveðjur úr sveitinni, Sonja

Nafnlaus sagði...

Híhí :) Takk!

Til hamingju með litlu frænku og þurrkarann :D Ég er með svoleiðis grip hérna úti (þurrkara þeas, ekki litla frænku) og það munar öööllu!

Nafnlaus sagði...

Knúsandi til lukku með Daða elsku Hrafnhildur og þið öll, meiri dóninn ég að skrifa ekki strax. Það er ómetanlegt að fá góða mágkonu í fjölskylduna. knús frá ömmu mús