"Nei! Það er byrjuð Spaugstofan" sagði Ísak áðan þegar hann sá Geir Haarde í fréttunum. Múahahahaha
Mahler liggur í dái inni á baðherbergisgólfi eftir heimsókn hjá dýralækninum. Auminginn var geldur og sprautaður og merktur og sennilega tuskaður til líka, hann er allavega alveg döjur elsku skinnið. Ég er búin að fara nokkrar ferðir og gá hvort hann andar!
Og endilega kvittið nú fyrir lesturinn á þessum merkispistli;)
3 ummæli:
Dett ég ekki akkúrat inn í "kvitt" færslu! Dóninn ég, kem reglulega í heimsókn án þess að láta vita. Alltaf gaman að lesa sögur af Ísak, litla snillingnum. Hvenær er svo von á bumbubúanum?
Kv.
Edda
Kvitt.
Jóna Björk
Hahaha...ekki nema von að grey drengurinn haldi að spaugstofan sé að byrja, það er venjulegast einu skiptin sem við sjáum þetta blessaða fólk ;) Allavega hefur það verið þannig hingað til. En það er víst að breytast núna ;)
Góð kveðja frá Keele :)
Skrifa ummæli