7. október 2008

Ýmislegt gengur nú á!

Fór í meðgöngusund í fyrsta skipti í gær. Sjúkraþjálfarinn mælti með því af því að ég fékk í grindina strax! Það var voða gott að hreyfa sig aðeins en ég fann mjög fljótlega að það fór að braka í lífbeininu og verk í mjóbakið. Sjúkraþjálfarinn sem sá um tímann sagði mér að gera minna eða bara slaka á! Aldrei má maður nú ekki neitt!
Svo eftir tímann fannst mér ég vera með samdrætti og stóð það í nokkra klukkutíma ásamt sting í náranum sem ég taldi togverki.
En þegar þetta leið ekki hjá í nótt hrindi ég í ljósmóðurina mína og hún vildi skoða mig. Fóstrinu líður vel en eftir læknisskoðun er líklegt að ég sé með sýkingu í þvagfærum og á að fara í ómskoðun á nýrum á morgun!!! Gá hvort er "útbungun á þvagleiðara"...
Svo "verð ég að passa mig" ef samdrættir koma, hvíla mig HELST Í VIKU BARA! Ég hugsaði nú bara jæja og sé það ekki alveg í anda að ég sé að fara að leggjast í sófalegu en auðvitað hlustar maður á líkamann ef eitthvað fer í gang.
Læknirinn skrifaði líka út svefnlyf fyrir mig. Já svefnlyf! Ég hef verið að sofa svona 4-5 tíma á nóttu síðan í viku 7. Og ekki samfleytt, þannig að maður er svona mis-örmagna á morgnanna. Ég ætla mér nú að fara varlega í alla lyfjanotkun en kannski prófa ég næst þegar ég er alveg búin á því og tek 1/2 töflu. Þetta á víst að vera allt í lagi...

Ísak er snilli eins og við vitum . Nú sagði hann við mig í fyrradag "á ég að lesa fyrir þig mamma? ég kann að lesa á íslensku af því ég les fyrir Jökul og Ragnar Stein!"
Og áðan sagði hann "ég kann að segja ga ga ga" og svo prófaði hann að segja Gosi og gaman og kisa og bara ljómaði af stolti og mamman klappaði og klappaði enda stór merkilegur áfangi hjá syni talmeinafræðingsins! Veiiiii

Á eftir er ég að fara að hitta vinkonu úr Kvennó sem ég hef ekki séð síðan við útskrifuðumst. Svei mér þá! Við vorum samlokur í 3 ár ásamt Önnu Dögg og annarri sem líka hefur horfið en ég hlakka mikið til að rifja upp gamla tíma og hlæja dáltið, en við gerðum einmitt mikið af því!

2 ummæli:

Unknown sagði...

jahhh það á ekki fram hjá þér að ganga Hrabbildur mín ...svona ebbði amma Jóna sagt það, vitandi að það væri alls ekkert rétt sagt ;) hahahaaa...

Elskan mín mikið svakalega ætla ég að vona að þú farir nú að sofa almennilega og mikið svakalega ætla ég að vona að þú sért ekki með þv.f.sýkingu! ...been there and hated it!
...við þurfum jafnvel að fara að heyrast bara!

Knús...bið að heilsa...

Nafnlaus sagði...

Æji, vonandi jafnaru þig á þessu sem fyrst. Ekki góðar fréttir :(

Taktu því bara rólega og slakaðu á :) Svona..eins mikið og hægt er :)

Farðu vel með þig :)