
sagði Ísak áðan í Bónus, og hallaði sér upp að einni frystikistunni! Hvar ætli hann hafi heyrt þetta? *hrmpf*
Fleyra sem hann hefur einmitt tekið upp eftir þessum ónefnda aðila er ÓMÆGOD! Hann var að leyta að Lill Käll um daginn og þá datt þetta upp úr honum; ó mæ dod hvar er Lill Käll?
Hann er orðinn þvílíkt duglegur að tala barnið. Getur núna lýst atburðarrás og sagt frá í nokkuð löngu máli. Spjallar t.d. mikið í símann núna. Vildi samt lítið tala við föður sinn sem var í Skálholti, bað bara alltaf um að fá að tala við Gunnar!
Við Ísak skemmtum okkur konunglega í bústað á Egilsstöðum í 2.sinn. Fórum í hálf furðulega göngu þar sem ég óð t.d. á með hann á bakinu og lyfti Völu yfir rafmagnsgirðingu! Sáum svo hreindýr á bænum Klaustursseli sem var mjög gaman því þau voru svo gæf. Þeir frændur voru nú heilmikið að kíta og klaga hvor annan sem var eiginlega frekar fyndið.
Nú höfum við rúma viku saman fjölskyldan hérna heima áður en við förum svo til Köben í viku. Ég er orðin mjög spennt, sérstaklega að fara með Ísak í dýragarðinn. Hann talar líka mikið um það að hann ætli að skoða tígrisdýr í búri.
Þessi elska er svo jákvæður. Í gær var ég í blússu sem mætti líka flokkast sem (afar) stuttur kjóll. Ísak spurði mjög hissa; "mamma, ertu í kjól? Þú ert fallegur". Og þegar við vorum að fara út í afa bíl eftir vel heppnaða heimsókn í sumarbústað í Munaðarnesi í gær sagði hann hressilega "þetta var nú aldeilis gaman". Líkist nafna sínum Ísak Þorra held ég bara:)
2 ummæli:
Æ hvað þið eruð ótrúlega sæt á þessari mynd!
Dúllan... ég var líka að hugsa það sama, að þeir nafnarnir væru nú svolítið líkir í sér :)
Vonandi gekk allt vel á leið til Köben - og þið hress svona í morgunasárið þrátt fyrir að þurfa að vakna svona snemma.
Kv. Bryndís frænka
Skrifa ummæli