16. júní 2008

Músin mín



hefur tekið ástfóstri við ljósbláa hárteygju! Hann fór með gosbrunn í hárinu í Húsdýragarðinn og Hagkaup í gær þessi elska. Það má ekki snerta þetta og hann svaf svona í fyrrinótt og sofnaði svona núna áðan. Í Hagkaup vorum við með Jökli frænda og þeir fengu að velja sér 17.júní blöðrur.
Jökull valdi Shrek.
Ísak valdi ljósbláan pony-hest með fiðrildum og blómum og vængjum! Hann er bara dýrlegur :-) Sýnir dálítið karaktereinkenni þeirra frænda!


Á morgun er svo bara skrúðganga með fánum, blöðrum og candy-floss! Ég man alveg að það er ógeðslegt en gleymi því alltaf um leið og ég sé það og bara VERÐ að fá mér!!!

Gleðilegan þjóðhátíðardag!!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Haha, en sætur. Reyndu nú aaaðeins betur að setja inn mynd af gosbrunninum (og af kandíflossáti í dag), mig langar svo að sjá.
Gleðilega þjóðhátíð.

Nafnlaus sagði...

Hann er bara flottastur yndislegi kútalingurinn með ekkert smá glæsilegan gosbrunn. Amman yfir sig stolt af gullmolanum.
amma Hlistín