21. maí 2008

Júró

1. í Júróvisíon búinn. Horfðum á hérna heima bara og héldum með Norge:) Erum svo að fara í matarboð á morgun hjá tónlistarskólanum sem Maggi vinnur í og EINS GOTT að það verði kveikt á sjónvarpinu.... ég er pínu stressuð því það byrjar örugglega ekki fyrr en hálf 8! Oh, vell kannski verður þetta endurtekið um helgina...

Á laugardaginn verður svo ROSA partý hérna, ma og pa mæta ásamt Hja og Vö og auðvitað hinum ofursvala Jökli. Svo ætlar Ragnar Steinn að halda uppi heiðri foreldra sinna sem eru svarnir anti- Eurovisionistar (er það orð?) og sátu heima í fyrra með slökkt á sjónvarpinu hahaha! En hann fær að vera hjá okkur og við ætlum að gera okkar besta til að hann verði farinn að syngja This is my life þegar hann verður sóttur múahahahahaha!!! Ísak er allavega farinn að biðja um "Limmisalæf" sí og æ og dansaði eins og óður áðan við íslensku útgáfuna. Ég fór nefninlega út í Hagkaup að kaupa brauð og djús og kom heim með Eurovison diskinn.... JÚHÚÚÚ!!

"limmisalæv oóoooo æ dónt vona tjeins a þi-ing limmisalæææææææ-æv lalalala"

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

oooo ég ætla sko að horfa á júróvísjón, ekki smurning sko!

En í færslunni á undan þessari þegar...voða fyndið en Tinna Katrín fór einmitt út á sokkunum, í rigningu meira að segja...elti mig þegar ég fór út með ruslið...og ég garga auðvitað á hana að hún eigi að vera í skóm og þá sagði hún "mamma ég er bara á fótunum..."

ÁFRAM ÍSLAND...er sannfærð um að þau komi okkur upp í aðalkeppnina!

Hrafnhildur sagði...

He he þessar elskur! Ég er ekki alveg jafn sannfærð, held að það séu svo mörg sterk lög í riðlinum...

Nafnlaus sagði...

Hvað sagði ég?! ÁFRAM ÍSLAND...

Auðvitað komumst við áfram...sjitt ég bara ennþá með kjánahroll og endagarnatitring...hreyfst þvílíkt með stemmingunni og allt var gjörsamlega í hvínandi botni hérna heima!

Hlakka mikið til laugardagskvöldsins...verðum í sveitinni...grill, nammi og rosalegt partý ;)