31. maí 2008

Ég missti nú bara alveg af

þessum skjálfta! Við Ísak fórum á bókasafnið og svo bara beint út á pall að moldvarpast í beðinu þegar við komum heim og ég veit ekki einu sinni hvar ég var á þessum tíma! Kannski á bókó, kannski að keyra bara eða komin út á pall? Fann allavega ekki boffs og vissi ekki um hvað pabbi var að tala þegar hann hringdi kl. hálf 6 um kvöldið! Þá var ég í Blómaval að kaupa meiri mold, meiri lúðinn!

Maggi er með Hljómeyki í Frakklandi í kórakeppni. Þeim gekk vel og komust í undanúrslit. Svo fá þau að vita með úrslitin á morgun. Spennó.

Við Ísak erum því bara ein að bagsast hérna. Það gekk frekar mikið á fyrstu 2 morgnana. Ég er vön að skilja þá feðga eftir í draumalandinu þegar ég fer út rétt fyrir 8 en nú þurfti ég að vekja Ísakinn og koma honum í föt og fá í hann mat og reyna að vera ekki mjöööög sein í vinnuna (sem reyndar var óumflýjanlegt þar sem hann byrjar ekki fyrr en 8 á leikskólanum). Hann var auðvitað ekki mjög hress með þetta og vildi ekki fá nýja bleyju, vildi ekki klæða sig, vildi ekki hafragraut og ekki þennan disk og ekki þessa skeið og jú hinn diskinn og svo var öskrað og grenjað.... úff! En á föstudagsmorguninn vaknaði hann glaður, tilkynnti það meira að segja. "Mamma é e dlaðu" Sem hann auðvitað oftast er, nema þegar hann er það ekki hehehe

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Litli guðdómurinn. Hvers manns yndi og að berjast við að sýna sjálfstæði við mismikinn fögnuð. Amma Klitstín svo þakklát fyrir gullmolana sína.

Nafnlaus sagði...

"ér svo svAkalega fystur..." þetta segir Tinna Katrín alltaf þegar hana langar að fá sér smá vatnssopa ;) hihi...

Já, hvað segirðu...finnst þér erfitt að komast út úr húsi á morgnana?! ...með EITT barn...?!

...prufaðu að koma 5 út og það á réttum tíma!!!

Hrafnhildur sagði...

Mér verður nú stundum hugsað til þín elsku frænka með alla gríslingana!!! Biði ekki í pirringsstuðulinn þá!!

Nafnlaus sagði...

hehe...pirringsstuðull er töff orð!

...maður verður pirraður ef maður skipuleggur sig ekki en ætlast til að allir hlaupi og hlýði NÚNA STRAX...