
Var hjá tannlækni í morgun. Sem hann er að deyfa mig fer höndin á honum öll að kippast til. Svo segir hann að hann hafi verið að klippa limgerðið alla helgina og sé með krampa í hægri hendinni! Þið getið rétt ímyndað ykkur hvort ég hallaði mér ekki bara aftur og lokaði augunum áhyggjulaus!!!
2 ummæli:
Hitchcock (er þetta rétt) hefði ekki slegið þennan hrylling út. Tannlæknir með krampa í hendinni. Ég meina það. amma Klitlín
Þetta hljómar eins og versta hryllingsmynd. Ég hefði nú bara fengið annan tíma !
Skrifa ummæli