
Elsku Skrámur fékk að sofna í gær.
Það er svo hryllilega tómlegt án hans. Allt í einu er bara hluti af daglega lífinu horfinn. Hann trítlar ekki yfir gólfið, situr ekki í gluggakistunni, malar ekki í fanginu á mér og ég heyri hann ekki bryðja matinn sinn. Ég þarf ekki að passa að hafa opið inn á bað og ekki að kveikja á útvarpinu fyrir hann þegar við förum út. Mér finnst þetta óendanlega sorglegt. Ég hágrét hérna í gær þegar ég kvaddi hann. Elsku skinnið. Besta kisa í heimi. Þetta er eins og ég hafi misst einn besta vin minn. En þetta var það eina sem við gátum gert, þetta gekk ekki lengur.
En mikið sakna ég hans.
9 ummæli:
Úff, ég fékk bara tár í augun. Innilegar samúðarkveðjur.
Kv. Þórunn (Jörfi/Áskirkja)
ÆÆÆÆÆ hvað mér þykir leitt að lesa þetta...elsku Skrámsi litli. Guð ég sit bara hérna með tárin í augunum, hann var svo ótrúlega góður og kelinn köttur. Vonandi líður honum betur núna, geri ráð fyrir að hann sé búinn að finna Blíðuna mína og þau kúri núna saman:)
vá hvað ég á eftir að sakna þess að geta ekki knúsað hann meir.
kv. Jóhanna
Takk fyrir það. Já, maður mátti ekki setjast niður þá var hann kominn að kela:)
Samúðarkveðjur Hrafnhildur mín.
Æji greyið skinnið en eins og Jóhanna segir þá eru hann og Blíða einhvarstaðar hoppandi og skoppandi og líður vel.. Samhryggist ykkur. Bið að heilsa og sjáumst fljótlega(miðjum feb allavega á stelpuhitting) Kveðja Íris
Elsku Hrafí, vona að ykkur sé farið að líða aðeins betur...
Já stelpuhittingurinn....hvort var hann 15. eða 16. feb.? Ég er allavega búin að taka báða dagana frá;)
kv. Jóhanna
Æ æ æ, þetta mölvar í mér hjartað. Ég veit ekki hvað ég gerði ef ég þyrfti að standa frammi fyrir því sama með hann Bangsa minn; ég get ekki ímyndað mér hvernig það væri að missa hann.
Kisurnar okkar eru hluti af fjölskyldunni okkar. Við mamma búum ekki bara tvær hérna, við erum þrjú í heimili.
Ég samhryggist þér og ykkur innilega, Hrafnhildur mín.
æji...en þá líður honum örugglega betur þarna í kisuhimnaríkinu...orðinn heill á ný, trítlar um allt, hlustar á útvarpið, bryður matinn sinn með fullt af öðrum kisum og er örugglega búinn að finna sér nýja gluggakistu og úr henni sér hann heim til ykkar! Kannski er hann búinn að kynnast kisu sem var í Vogum hjá ömmu og afa og hún búin að segja honum fullt af skemmtilegum sögum af okkur þegar við vorum litlar :)
Sendi alveg fullt af hlýjum kveðjum til ykkar...
...er alltaf á leiðinni að heyrast!
Guðrún E.
Skrifa ummæli