Þá er fyrsta vikan hjá leikskólastráknum að klárast. Það hefur gengið mjög vel. Hann verður samt bara til hádegis á morgun og fær ekki að sofa fyrr en í næstu viku. Okkur lýst mjög vel á og hann er glaður.
Ég ákvað svo að halda áfram að syngja með Fílharmoníunni. Það er verið að syngja Brahms Sálumessuna sem flutt verður með sinfó í mars. Hef samt enn ekki ákveðið hvort ég ætla með til Póllands í apríl. Skólinn er að fara til Sverige morguninn sem Póllandsferðin endar svo ég veit ekki hvernig ég pússla þessu. En hvenær á maður annars að fara til Póllands??? Maður spyr sig.
Skámur er voða lasinn. Hann rokkar reyndar upp og niður en við erum að þrífa eftir hann úrgang nokkrum sinnum á dag (yfirleitt af sömu flísinni í forstofunni!) og hann er grindhoraður þó hann borði vel. Það er verið að athuga hvort þetta er brisið eða skjaldkirtillinn og vonandi kemur eitthvað út úr því. Svo virðist hann svo ofboðslega svangur, hringsólar í kringum okkur þegar við borðum og ræðst svo á mylsnuna til að athuga hvort hann getur ekki fengið eitthvað. En hann má bara ekki fá neitt nema þurrmat og soðinn kjúkling svo þetta er ekki nógu gott. Nú er ég að reyna að borða ostapopp og það er nánast ógerlegt því hann treður andlitinu oní skálina eða vill sleikja mig! Æ rassi spassi
2 ummæli:
Gott að leikskólinn gengur vel.
Skelltu þér til Póllands kona, bara gaman að því! ...þ.e. ef þið fáið pössun :)
Aumingja lilli Skrámur. Voðalega erfitt þegar dýrin eru svo lasin og ekkert beint hægt að gera. Vonum að honum batni.
Bryndís frænka
...já og gleðilegt ár!
Geturðu ekki bara flogið frá Póllandi og til Svíþjóðar og hitt skólaliðið þar? ;-)
Skrifa ummæli