Það nýjasta af prins Ísak er smá ógeðissaga. Eins gott að amma Kristín varð ekki vitni að henni. Þannig var að við skelltum okkur í sundtímann í morgun eins og vanalega á sunnudögum. Nema hvað að í miðjum tíma varð Ísak brátt í brók. Hreinlega með niðurg... en sem BETUR FER var hann staddur á bakkanum þegar allt lak niður. Ég greip hann og hljóp með e-n veginn hangandi á handleggnum á mér og inn í sturtu. Þar var sem betur fer enginn því ég hefði betur farið inn á klósett. Þegar ég tók hann úr sundskýlunni vall allt niður og já.... maður þarf svo sem ekki að fara út í nánari lýsingar en hann eignaðist allavega nýja sundskýlu í dag! Hann kom stoltur heim úr sundtímanum og tilkynnti pabba sínum "Ía túda" (Ísak kúka).
Það er alveg magnað hvað málinu fer fram. Hann skilur vel það sem sagt er við hann og er farinn að gera tilraunir með beygingar og frasa. Hann segir t.d. þegar hann vill gera sjálfur "Ía sjápa sjé" sem er Ísak hjálpa þér! Og líka "haldá sjé" þegar hann vill láta halda á sér. Hann er sem sagt ekki farinn að fatta fornöfn haha! s-ið er nánast alveg komið en hann notar enn ekki k eða g... við erum samt aðeins að æfa okkur að setja puttann í munninn og segja ga-ga-ga nema hann setur puttann bara fyrir aftan tungubroddinn og segir da-da-da voða stoltur:D

Skrámur er eitthvað að valda okkur áhyggjum. Við erum nú búin að ætla lengi með hann til dýralæknis í tékk enda hefur hann ekki farið síðan í einangruninni. Svo hefur hann verið að gubba af og til og það jókst í sumar og haust. Nú er hann bara grindhoraður greyið. Enda kom í ljós að hann hefur lést um 2,5kg síðan við fluttum heim! Það er sko mikið fyrir kött. En það virðist ekkert ama að honum. Hann fór í rannsókn sem ekkert kom út úr og nú er hann bara á e-u heilsufæði og sýklalyfjum litla skinnið. Við verðum að vera dugleg að knúsa hann og kyssa held ég.
Og svo síðbúin auglýsing... allir á tónleika núna kl 17 í Áskirkju hjá Magga og Ingibjörgu!
2 ummæli:
Ekki amalegt að vera með einka- talmeinafræðing! Frábært alveg :) Við erum rosalega ánægð með þig og allar æfingarnar, Ísak gerir þær samviskusamlega og er farinn að skipta loftinu á milli efri og neðri varar eins og herforingi! Hann er svo samviskusamur þessi elska :)
Jæja, sjáumst á laug eftir viku!
Kv. Bryndís
hehe, rosa sætt og fyndið þegar manns eigin börn eiga í hlut...minna fyndið þegar um annarra manna börn er að ræða.
Kv.
Edda
Skrifa ummæli