Haldiði ekki að maður sé bara farinn að syngja aftur! Og það jólalögin! Mætti á kóræfingu hjá Magga á mánudaginn og þar er verið að æfa fyrir aðventutónleikana, mjög notalegt auðvitað. Pínu snemmt svona þannig að ég lít þannig á að þetta sé ekki brot á reglunni af því að maður verður að æfa sig. Ég tek þetta mjög rólega og fer bara 1x í viku og svo skiptast ömmurnar á að passa svo þetta er svona mjúk byrjun fyrir mömmuna. Talandi um söng: Þetta er brill, ég stal þessu af síðunni hennar Jónu
Annað sem gerst hefur (mjög skyndilega) er að ég er komin með nema. Ég er sem sagt orðin leiðbeinandi nema í talmeinafræði. Hún er alveg að klára námið í Danmörku og verður eitthvað hjá mér alveg fram í nóvember. Voða spennó og skerpir mann alveg að þurfa að ausa úr viskubrunni sínum. Held það sé bara hollt. Svo get ég líka látið hana grynnka aðeins á biðlistanum í skólanum hehe!
Vika í Minneapolis:D Ótrúlegt! Tíminn líður svo hratt að maður þarf alveg að vera á bremsunni!
3 ummæli:
Hæ hæ,
nú verð ég að heyra í þér - langar að koma Ísak mínum til þín í tíma. Hefurðu tíma?
Kv. Bryndís frænka
Vá, fer alveg að líða að útlandaferð. Það verður sko gaman :-D
Hahaha, þetta er sko sniðugur fugl!
Skrifa ummæli