12. maí 2007

Látum það vera lokaorðin

Mogginn í dag:

Ekki varð annað heyrt en að Hljómeyki og stjórnandi þess væru í toppformi, eins og gleggst mátti greina á veikustu stöðum – þrátt fyrir kornabarnsbabl utan úr sal sem gerði hlustendum og hljóðupptökumönnum lífið leitt. Slíkt er því miður ekki einsdæmi, og væri óskandi að tónelskir foreldrar þekktu betur sinn vitjunartíma.

Ríkarður Ö. Pálsson


Þar fengum við aldeilis....

Gleðilegt Eurovision og kosningarkvöld. Gangið hægt um gleðinnar dyr en skemmtið ykkur ógeðslega vel!


1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Noh, það er naumast! Ég var búin að gefast upp og var farin að halda að þú værir hætt að blogga. Svo kíki ég hér inn í sakleysi mínu og það er fullt af lesefni. Gaman að því :)