
Ísak er einn af þeim útvöldu! Hann fékk Bréfið! Hann verður leikskóladrengur í haust:D Þvílíkur léttir smettir. Ekki búið að tala um annað í vikunni hjá dagmömmunni:"Ert þú búin að fá bréf? Nei en þið? Guð, þá fáum við ekki bréf..., þið VERÐIÐ að hringja uppá Þjónustumiðstöð og vera reið..." En Bréfið kom í dag og það lá við að ég valhoppaði eftir ganginum í skólanum þegar ég frétti það. Sjúkket bara
3 ummæli:
Orðinn svona stór og flottur gaur :) Fyrst þú ert kominn í leikskóla þá ferðu bráðum í skóla, svo er það ferming...framhaldsskóli..........háskóli.......fjúff hvað þetta líður hratt!!!
Frábært til hamingju með það...alveg áfangi að byrja í leikskóla. Rosalega er hann orðinn stór...men ég verð að fara að hitta ykkur...ertu viss um að sért flutt frá Svíþjóð ?
Já hann er risalítillstór strákurinn okkar! Hver spyr hvort ég sé flutt? Ég er alltaf til í hitting...
Skrifa ummæli