...að SKELLA SÉR á tónleikana hans Magga (jú og söngsveitarinnar Fílharmóníu) 1. eða 3. apríl kl. 20:00 í Langholtskirkju. Flutt verða þrjú kórverk eftir meistarana Brahms, Mendelssohn og Schubert. Miðar seldir á midi.is og allar upplýsingar að finna þar. (Möguleiki á ódýrari miðum gegnum okkur *blink blink*)
Koma svo!!!! Sýna smá lit!!! Hafiði einhvern tíman séð hann stjórna??? Hann er geðveikt flottur skoh! Þetta gefur góða stemningu fyrir páskana. Sjálf ætla ég að fara 1. apríl ef e-r hefur áhuga á að vita það.
Annars er undrabarnið Ísak rosalega skemmtilegur þessa dagana (eins og alltaf). Hann er farinn að geta raðað mismunandi formum án hjálpar í rétt hólf, talar og talar og kann nokkur lög (sem hann getur fyllt í eyðurnar), hjálpar til að henda rusli, gengur á tánum og auðvitað rokna snillingur í sundinu. Aðal orðið núna er "meira"... mjög hagnýtt hahaha. Hann gefur Skrámi matinn sinn, matar sig sjálfur af skyri og jógúrt og og og...
SJÁUMST Á TÓNLEIKUNUM!
1 ummæli:
...þá veit ég hvað þið eruð að gera í kvöld :-) Góða skemmtun og gangi þér vel Maggi. Nú fer allt að gerast hjá litla gutta. skemmtilegir tímar.
Skrifa ummæli