Nýjar myndir. Sérlega flottar sundmyndir í boði;)
Þá er ég bara búin að bóka far til Göteborg! Fer í "húsmæðraorlof" í vetrafríinu mínu. Veiiiiiii!!! Ætlaði ekkert að gera þetta en svo bara ákvað ég að skella mér! Er orðin rosa spennt og hlakka til að fara í mekkað/H&M...
Ísak er hættur frekjuköstum, búinn að sofa ALLA nóttina sl. 2 nætur. Rosalega skrýtið að heyra ekkert í honum alla nóttina. Hvað á maður þá að gera? Sofa? Ja, mér er spurn, ég kann ekkert á þetta lengur.
Hins vegar borðar hann ekkert, búið að standa ansi lengi finnst okkur og þarf að tékka á því. Maður er að telja ofaní hann 3 skeiðar af jógúrt og 2 brauðbita yfir heilan dag. Ég er nú kannski aðeins að ýkja en ekki mikið.
Best að fara snemma að sofa og vinna upp svefntap sl árs hahaha
3 ummæli:
Hæ kæra frænka! Gott að heyra að gaurinn sé farinn að sofa betur og hættur að borða seríós á nóttunni, hihi... Tinna er búin að vera svona heillengi þ.e. hún er einhvern veginn ekkert voðalega svöng! En hún er hins vega ógurlega þyrst og segir endalaust "dekka" og bendir á ísskápinn ;) Svo er hún reyndar óvenju lystarlítil núna vegna veikinda......kannski er þetta bara svona tímabil, hlýtur að ganga yfir! Það er víst engin hætta á að þessi börn svelti sig, var mér sagt þegar ég fór með hana til læknis um daginn svo þú getur andað rólega :)
Góða húsmæðraorlofsferð...láttu þér líða vel í H&M og góða skemmtun!
Sofðu eins og þú getur mín kæra ;) Ég vona svo að húsmæðraorlofið verði ánægjulegt og passaðu nú að visakortið brenni ekki yfir í H&M ;)
Góða ferð til Gautab. Skemmtu þér vel Kveðja í bæinn.
Skrifa ummæli