14. janúar 2007

Vetur konungur

Frábær helgi að baki í sumarbústað við Flúðir. Það var nú pínu óþægilegt að keyra á föstudagskvöldið í myrkrinu og skafrenningnum en við fórum bara rólega. Bústaðurinn var rosa fínn en við vorum nú ekkert að moka okkur út í pott í frostinu... brrrr! Mamma og pabbi litu við og komu með snjóþotur. Ísak finnst sko ekki leiðinlegt að "inna"(renna) en grenjaði reyndar heil ósköp þegar hann datt beint á andlitið í skafl! Skrýtið... er það ekki voða notalegt? Hann vildi samt alltaf strax uppí þotuna aftur. Við renndum okkur nokkrar ferðir og sendum hann líka bara einan niður brekkuna! Hann naut þessa að hlaupa um bústaðinn og í dag var aðalorðið "amma" sem hann galaði og gólaði um allt. Stóð lengi í forstofunni og kallaði á ömmu! Þegar hann segir amma tekur hann alltaf um leið í peysuna sína framanverða og togar!!! Veit ekki alveg... Kannski af því að mamma leggur alltaf hendina á bringuna þegar hún segir "amma". Nú kann hann alveg heilmikið af orðum: mamma, amma, afi (spariorð), Daði, nei, ó-ó, namm, renna ,róla, alltbúið, opna, loka, dudda, takk, datt, bless/bæ, halló, detta, súpa (því miður.... mamman vildi kenna honum drekka!), og táknið fyrir "borða", en þrátt fyrir þrotlausar æfingar segir hann ekki ennþá PABBI!!! Aumingja Maggi bíður og bíður en þegar við segjum pabbi svarar hann bara "mamma". Stundum segir hann reyndar mamba sem gæti þýtt pabbi...? Allavega, þetta átti að vera pistill um bústaðarferð...

Okkur tókst næstum að pússla einu Jigsaw-pússli og lágum svo bara dálítið í sófanum og ég lagði mig m.a.s. í dag! Verst að geta ekki verið í viku bara!

Framundan er dagur á skrifstofunni með öllu tilheyrandi og svo vinnuvikan í skólunum mínum. Loksins er ég komi í gang að þjálfa nokkra krakka, finnst ég vera farin að vinna af alvöru. Best að fara að hvíla sig fyrir átök vikunnar.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mikið hefur þetta verið geggjuð ferð hjá ykkur. Hljómar afar vel, afslappandi. Sunneva fór nú að tala um það um daginn að hún vildi aftur fara í svona stelpuferð með Hrafnhildi (alveg upp úr þurru).

Gaman hvað Ísak er farinn að tala mikið ! Verð að fara að hitta ykkur barnið er að verða fullorðið og ég er að missa af því !

Ég er btw enn að jafna mig eftir leikhúsupplifunina get ekki sagt fólki frá þessu án þess að missa mig í móðursýkingslegan hlátur...spurning hvort það sé eitthvað að mér...hmz maður spyr sig.

Allavega esskan var að hugsa til þín og gaman að sjá nýja færslu.

ADH

Nafnlaus sagði...

Hae fraenka,
langt sidan eg hef kikt her vid - og eg man ekki hvernig a ad skoda myndirnar :(
Arney talar litid en hefur mikid skap og orgar bara. GG ser um ad tala og er non-stop allan daginn, meir ad segja talar vid matinn sinn!
En bara ad kvitta nuna tvi onnin hefst formlega med fyrsta timanum eftir korter og eftir tad hef eg orugglega ekki marga lausa fritima

Kv. Gunnhildur og co

Nafnlaus sagði...

Það er svo notalegt að komast aðeins í bústað og fá smá pásu frá amstri hversdagsins! Gaman að heyra hvað Ísak er farin að segja mörg orð...og Maggi, ekki örvænta...þetta kemur fyrir rest ;)