20. janúar 2007

Góðuuur!

Íþróttakennarinn í skólanum mínum spurði nokkra 6 ára hvort þau hefðu ekki fengið jólasteik?
"Nei! Baða sona kjúttling með dðullu í ðassinum"! Svaraði einn guttinn.

Pabbi sagði svo einn góðan og sannan í gær. Nokkrir Íslendingar hittust óvænt í flugvellinum í Osló og spurt var um ferðir fólksins. Nokkrir voru að koma af lesblinduráðstefnu. Nú, hvar var hún haldin? var spurt. ! "Í Stavangri"

HAHAHA!!!

Annars er ekkert fyndið við síðustu nótt hjá okkur hjónum. Keyptum okkur nýtt rúm á miðvikudaginn fyrir marga peninga. Það átti að koma með þetta í gær en leið og beið og ekkert kom og endaði á því að við sváfum illa á beddunum okkar. Fórum auðvitað og kvörtuðum áðan og strákgreyið sagði að rúmið væri bara ennþá niðrá lager. Enginn veit svo sem af hverju, það náðist ekki í bílstjórann. Við bíðum nú eftir að þetta komi í dag og að við fáum e-r sárabætur!! Alveg glatað. Búin að hlakka svo til að fá nýtt rúm og auðvitað henda gamla því hver hefur pláss fyrir 2 hjónarúm í 3ja herberga íbúð?

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ! Alltaf svo gaman að lesa bloggið þitt, enda orðheppin kona. Við mæðgur komum 6. feb. og ég er byrjuð að skrifa pistla á heimasíðuna.
Bestu kveðjur Sandra Sif

Nafnlaus sagði...

Vona að rúmið sé gott núna þegar að þið hafið fengið það heim til ykkar. Það er eflaust betra en beddarnir ;) Svo er bara að heimta dúnsængur og heilsukodda í skaðabætur ;)

Maggi sagði...

Fengum einmitt heilsukodda í skaðabætur. Ég er voða sáttur!

Nafnlaus sagði...

Ok í fyrsta lagi, vá hvað ég sakna þín Hrafnhildur. Símaletin er hins vegar á hæsta mögulega leveli þessa dagana enda verið að taka í gagnið nýtt símkerfi í vinnunni og ég bara get ekki hugsað mér að tala í síma er heim kemur samt stoppar helv...síminn ekki.

Í öðru lagi til lukku með rúmið og gott mál að þið fenguð svona fínar skaðabætur eða réttara væri að kalla þetta þjáningabætur miðað við nóttina sem þið þurftuð að þola á beddanum.

Í þriðja lagi ég er bara fyrrverandi ljóska úr Breiðholtinu og ég fatta ekki djókinn ! En ég get sagt þér einn. Veistu hvernig þú breytir uppþvottavél í snjómokstursvél ?????????????????

.........Þú tekur af henni þvottaburstann og réttir henni skóflu.. HA HA HA.

Í fjórða lagi ég fór til kollega þíns doktorsnemann og tók þátt í stamrannsókninni og fer aftur á morgun til að endurtaka leikinn. Áhugavert verð ég að segja.

Í fimmta lagi ég er ekki enn búin að jafna mig eftir Bakkynjur en get ekki beðið eftir að sjá Leg.

Í sjötta lagi...hmz ég sakna þín og langar að fara að hitta þig. Vá þetta er eins og texti í lélegu dægurlagi...argh best að fara að sofa bara.

Góða nótt
ADH

Ekkert jafnast á við gott rúm. best í heimi. Langar til að benda á nýja bloggsíðu mína, olist.blogspot.com. kíkkið áana og njótið! kveðja ólist.

Maggi sagði...

Sko: Kjúklingurinn með drullu í rassinum var sem sagt kalkúnn.
Og lesblindir voru með ráðstefnu í "staf-angri".