7. janúar 2007

Gleðilegt ár

Mikið er maður nú búinn að hafa það gott. Jólin voru mjög hefðbundin og ánægjuleg. Við skiptumst bara á að sofa út og höfðum það huggulegt hér heima og hjá vinum og fjölskyldu. Áramótin voru rosa skemmtileg og sena ársins átti sér stað þar þegar við komum heim e miðnætti, öll hersingin sem var hjá Indru og það fyrsta sem við heyrum innan úr stofu er:"viltu meira snakk, Ragnar Steinn?" Þá voru báðir strákarnir vaknaðir og afi Hlö og amman ekkert smá sátt með strákana sína í fanginu hehehe!
Við fórum upp á Skólavörðuholtið og þetta er í fyrsta skipti sem ég varð smeik við allar sprengjurnar, þær voru gjörsamlega á milli fótanna á manni! Ótrúlegt líka hvað er búið að sprengja mikið undanfarna daga! Biluð þjóð.

Við erum lögst í "rúmleit". Tókum 3 daga og erum búin að skoða í allar rúmbúðir í borginni. Held við séum búin að finna rétta rúmið en ætlum samt að tékka aftur ef minnið er að bregðast okkur. Ohh ég hlakka svo til að fá nýtt rúm. Í einni búðinni fengum við "legugreiningu" og þar sagði maðurinn að ég væri nánast ómöguleg! Ekki til dýna sem hentar mér og ef ég væri 10cm styttri hefði hann sagt að þetta væri ekki hægt! Ok.... gott að vita!

Við fórum á 2. sýninguna á Þjóðleikhúskortinu okkar; Bakkynjur. Segi ekki annað en við fórum í hléi. Þá var hálfur salurinn búinn að sofa á e-m tímapunkti og maður búinn að telja allt sem hægt var í salnum. Pasta basta.

Ísak er farinn að ganga. Gengur núna alveg innan úr svefnherbergi og fram í stofu og ef hann dettur þá fer hann bara restina á hnjánum. Ferlega fyndinn. Honum finnst hann alveg vera að gera jafn merkilegan hlut á hnjánum. Hann dýrkar pabba og vill frekar vera hjá honum en okkur ef hann er nálægur. Grenjar svo þegar hann fer frá honum. Það er nú bara sætt og pabbi segir "er á meðan er" og lætur allt eftir honum. Svo er Jökull farinn að faðma hann í bak og fyrir þegar þeir hittast! Ísak fékk rólu frá Jökli í jólagjöf og er búinn að flytja lögheimilið sitt í hana. Getur setið tímunum saman og daginn sem hún var sett upp sat hann í heilan klukkutíma. Hann lærði strax að segja róla og nú hljómar það í eyrum okkar liðlangan daginn; "illa, illa!"

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Segi það með þér...maður var skíthræddur í Skólavörðuholtinu þegar að maður fékk alls kyns drasl í hausinn frá himnum og flugeldar sprungu við löppina á manni og svona. Endemis fjör! ;) Svo verður maður að segja til hamingju með göngugarpinn :D