ja, ekki skyldum en kannski hjónum! Þegar ég var búin að skutla Magga niður í kirkju í kvöld og nánast lögð á stað aftur kom hann hlaupandi og benti mér á hið óumflýjanlega: sitt hvor skórinn!!! Við erum ekki eðlileg. Hann var þó samt í tveimur svörtum. Ég skötlaðist auðvitað heim og náði í hinn spariskóinn og hló inní mér og reyndar upphátt líka hahaha.
Jú, svo erum við bara bæði í Fréttablaðinu í dag. Það er sko ekki amalegt að vera talmeinafræðingur; alltaf að leika sér í vinnunni bara! Ljúft
Ísak sagði datt í dag með t-inu! Hefur alltaf sagt "dah" en núna er það skýrt og skorinort "dah-t" Þegar ég ætlaði að leyfa Magga að heyra það sagði barnið auðvitað alltaf bomm í staðinn haha. Eða reyndar ekki bomm heldur "dann-a" sem þýðir sko bomm. Það er nánast allt sem heitir dah eða dann hjá honum: datt, Daði, dudda, bomm...
Jæja, ætlaði að fara að skrifa jólakortin til Svíþjóðar
4 ummæli:
Hejsan du berömta. Sá ekki viðtalið við talmeinafræðinginn fyrr en í gærkveldi þegar blaðinu var flett eftir bakstur með Svenný hjóni. Marrr var ekkert smá stoltur. Missti hins vegar af glæsimyndinni af kórstjóranum, datt ekki í hug að bæði hjónin prýddu þetta eintak.
Kristín tengdó og amma með meiru
Hei ég var einmitt að lesa þetta tiltekna blað í hádeginu...var meira að segja búin að lesa smá áður en ég fattaði að þetta varst þú!!!
"haðe ðetta þðanna" held að þetta sé stafað svona á "tinnískunni" en á íslensku þýðir þetta "hvað er þetta þarna" ...ég hef nú ekki tölu á hvað hún segir þetta oft á dag en það er sko OFT og þetta er hún búin að tuða í næstum 2 mánuði ásamt því að benda á allt með báðum vísifingrum! Þar áður var einmitt "dah-t" Það er svo skemmtilegt að fylgjast með þeim byrja að tala...jú hún segir "baamba" í bíum bíum BAMBAló.......annars held ég að við þyrftum að heyrast von bráðar, svo langt síðan síðast
Mikið ertu sæt í blaðinu elskan :-)
Hæ og til hamingju með Ísak!! Við skötuhjúin erum búin að æla í viku og erum loksins að komast á lappir. En ætlaði bara að segja að það eru komnar myndir frá Íslandsheimsókn á netið, júhú!! Og Bjarki er meira að segja búin að gera forrit sem flýtir innsetningu mynda, ha ha segi ég bara!! Jæja fræga kona best að skrifa bara e mail fyrst að einræðisherrann er sofnaður!!
Kv Sandra Sif
Skrifa ummæli