24. nóvember 2006

Próf

1. Hvar býr maður til matinn?
2. Hvenær burstar þú tennurnar?
3. Hvernig komst þú í skólann í dag?
4. Hvers vegna þvoum við fötin?
5. Hver flýgur flugvélum?

Þessar spurningar hef ég lagt fyrir 6 ára krakkana í skólanum. Sum svörin eru alveg dýrleg eins og svörin við sp 2; alltaf! Dauðhrædd um að ég sé kannski tannlæknir að tékka á tannburstuninni... sp 3; í úlpu og húfu og vettlingum! sp 4; annars værum við bara algjörar druslur! sp 5; annað hvort flugvélamaðurinn eða vængirnir á flugvélinni!

Hahaha

Þau horfa líka á mig eins og ég sé biluð þegar ég spyr hvar maður býr til matinn og skilja ekkert hvað ég er að meina. Svona til útskýringar er ég að tékka á skilningi spurnarorðanna...

Annars er ótrúlegt hvað börnin treysta algjörlega hinum fullorðnu. Ég kem inn í bekkinn, segi eitthvað nafn og bið það barn að koma aðeins með mér. Þau koma umorðalaust, og sum taka bara í höndina á mér, tilbúin að láta leiða sig hvert sem er! Manni verður nú ekki alveg um sel, hvað ef ég væri ljóti karlinn???

Annars eru stóru fréttirnar þær að lilleputtbráðurmeinsárs tók sín fyrstu skref í gær! Var með Daða bróður inní dótaherberginu hans Jökuls og langaði svona ofboðslega að róla að minn bara tók 2 skref í áttina að "gulrótinni". Enginn til vitnis nema Daði. Ísak kann að velja sér áhorfendur! Svo kom amma mús færandi hendi í dag með fyrstu alvöru skóna jeiiiiiiii! Hægt að fara í göngu með pabba sínum fljótlega:D

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hey, til hamingju með göngugarpinn. Hann getur þá tekið mörgæsalabb með frænda sínum. Það er bara sætt ;) Svo eru svörin frá sex ara gríslingunum bara sniðug. Börn eru svo einlæg :) Spurning um að teipa sig sko...Kínafólkið vill mig í nálastungu. Kannski ég prufi það...gerist mennskur nálapúði og sé hvernig það virkar ;) Og eg segi það með þér...Viva Espana! Hugurinn ber mig hálfa leið... ;)

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með "grákinn"! Þetta er mjög spennandi og skemmtilegt.

Freyja tók einmitt 7-10-13 skref hjá Möllu sinni í gær -auðvitað þegar mamman ekki sá til, en hún er búin að vera að taka 1-2 hjá okkur... hún hefur ekkert viljað labba hjá okkur, er liggur við farin að halda að Malla sé hreinlega að ljúga!!! ;)

Hrafnhildur sagði...

Þessar dagmömmur segja bara eitthvað! Bara það sem maður vill heyra. Segi svona... okkar lýgur náttúrulega ekki

Nafnlaus sagði...

Neih til hamingju með skrefin :)

Tinna kann að labba á hnjánum! Sem er bara fyndið...annars skríður hún bara ennþá...gengur með og stendur líka alveg sjálf heil lengi...en að taka skref...nei takk...hún tekur sér tíma í þetta gellan ;)